Í kjölfar kynningu LS á fundi með sjávarútvegsráðherra, sem greint hefur verið hér frá, sendi félagið ráðherra ítarlega greinargerð til áréttingar á tillögum sínum um hámarksafla á næsta fiskveiðiári.
Meðal þess sem þar kemur fram er tafla sem sýnir lokatölur yfir þorskveiði síðustu 6 almanaksára og spá um afla yfirstandandi árs. Meðal þess sem taflan sýnir er að fari ráðherra eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um 215 þús. tonn er það ávísun á aðeins 18% veiðihlutfall, en aflaregla segir til um 20%. Þá kemur einnig fram að veiðihlutfall 2012 var 19% og 2011 18%.