Ráðherra efnir til fundar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, boðar til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra.  
Skýrslan inniheldur ítarlega umfjöllun um núverandi stöðu sjávarútvegs- og fiskeldis og áskoranir og tækifæri til framtíðar.
Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ og ritstjóri skýrslunnar, gerir grein fyrir helstu niðurstöðum hennar.
Fundurinn verður á morgun 12. maí og hefst kl 14:00.
Screenshot 2021-05-11 at 14.25.08.png