Ráðherra kynnir frumvarp um veiðigjöld

Dreift hefur verið á Alþingi frumvarpi um veiðigjald.  Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir í kynningu á frumvarpinu að „nú þrasi menn ekki um hvort innheimta eigi veiðigjald heldur hversu hátt það eigi að vera.
Það veldur gríðarlegum vonbrigðum að í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir leiðréttingu til lítilla og meðalstórra útgerða eins og stjórnvöld höfðu ákveðið í frumvarpi atvinnuveganefndar í júní sl.  
Í frumvarpinu er afsláttarprósenta jöfn hvort heldur sé um stórar eða smáar útgerðir að ræða.   Hætt er við að frumvarpið verði það samþykkt óbreytt auki enn á ójöfnuð milli útgerðarflokka.
Landssamband smábátaeigenda mun beita sér að öllu afli fyrir leiðréttingu veiðigjalda sem smábátaeigendur greiddu á sl. fiskveiðiári.  Ennfremur að veiðigjöld sem lögð eru á smábáta verði miðuð við afkomu þeirra en ekki stórútgerðarinnar.