Hafrannsóknastofnun hefur metið stofnstærð klóþangs í Breiðafirði. Til grundvallar eru mælingar sem framkvæmdar voru árin 2016 og 2017. Stærð stofnsins er 1.370 þúsund tonn og á grundvelli varúðarnálgunar er ráðlagt aflamark 3%.
Ráðgjöf stofnunarinnar nær til tímabilsins 2018 – 2022 að heildartekja klóþangs verði ekki meiri en 40 þús. tonn á ári eða langtum meira en það sem tekið hefur verið úr Breiðafirði á undanförnum árum.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar nam útflutningsverðmæti þangs og þaramjöls á síðasta ári um 16 milljónum sem var verulegur samdráttur frá 2016 þegar verðmætið nam 43,7 milljónum. Viðskiptaþjóðir okkar þessi árin voru Nígería, Spánn og Suður-Afríka.