Ráðuneytið gefur út 32 veiðidaga

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um hrognkelsaveiðar.   Þar er veiðidögum fjölgað úr 20 í 32.
Á fundi grásleppunefndar LS sem haldinn var í gær 30. mars var ákveðið að mæla með 36 veiðidögum á yfirstandandi grásleppuvertíð.
Samkvæmt upplýsingum úr Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er um bráðabirgðaákvörðun að ræða sem kemur til endurskoðunar um miðjan næsta mánuð ef þörf verður á.
Sjá nánar reglugerð
Grásleppa til fyrirmyndar.jpg