Reglugerð framlengir línuívilnun

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um línuívilnun.  Breytingin afturkallar fyrri ákvörðun um að línuívilnun falli niður frá og með deginum í dag.  
Ekkert rof verður á henni þar sem tímabilunum hefur verið breytt.  Í stað þess að II. tímabil gildi til loka febrúar, kveður reglugerðin á um að tímabilinu hafi lokið í gær 11. febrúar og í dag hefjist III. tímabil sem gildir út maí.
Ráðherra er hér með þakkað fyrir að bregðast svo skjótt við og koma þannig í veg fyrir að línuívilnun falli niður.