Rífandi gangur á strandveiðum

Fjöldi á strandveiðum í ár ætlar að slá öll fyrri met.  Alls hafa 658 bátar landað afla frá 1. maí til 13. júní.  Á sama tíma í fyrra höfðu 605 landað og 2010 592 bátar.
Aflabrögð hafa verið misjöfn eftir svæðum.  Eins og fyrri ár er afli á hvern bát mestur á A-svæðinu 6,3 tonn að meðaltali og skammt þar á eftir eru bátar á svæði D 5,8 tonn.
Hér má sjá upplýsingar um strandveiðar 2012 tímabilið frá 1. maí til og með 13. júní. 
Screen Shot 2012-06-14 at 23.35.24.png
Myndin hér fyrir neðan sýnir veiðarnar í júní.
Screen Shot 2012-06-14 at 23.43.39.png
Eins og fram hefur komið hafa veiðarnar á svæði A verið stöðvaðar til 2. júlí en önnur svæði eiga eftir nægar heimildir sem væntanlega endast út mánuðinn.
Screen Shot 2012-06-14 at 23.36.49.png


Hér má sjá yfirlit yfir strandveiðar þrjú fyrstu ár þeirra.
Screen Shot 2012-06-14 at 23.37.13.png