Ríflega fimmtungs samdráttur í grásleppuveiðum á Grænlandi

Í dag bárust þær upplýsingar frá Grænlandi að yfir 22% samdráttur væri milli ára í grásleppuveiðunum.  Veiðin 2012 stefni í að vera nálægt 10 ára meðaltali, eða í kringum 8 þúsund tunnur.

Veiðarnar í ár byrjuðu mun seinna en á síðustu tveimur árum. Aðalástæður þess voru mikill ís, gríðarlegur loftkuldi og óvanalega stormasöm veður.  Vertíðin reyndi því mjög á veiðimenn, en sjónarmið þeirra í stöðunni er athyglisvert: náttúran hefur þá meiru úr að spila úr í framhaldinu. 
Samdrátturinn er ekki einhlýtur yfir allt veiðisvæðið, sem er fyrst og fremst á vesturströnd Grænlands.  Þannig er til dæmi um að veiðin hafi aukist á milli ára á tilteknu svæði og einmitt þar sem ísinn hélt sig lengra frá landi en annars staðar.  Að sögn veiðimanna var þar óhemja af þeirri gráu. 
Línur fara nú að verða býsna skýrar um grásleppuvertíðina 2012.  Mikill samdráttur í Noregi, svipaður afli milli ára á Íslandi, yfir fimmtungs samdráttur á Grænlandi og sama og síðustu 6 ár á Nýfundnalandi, nálægt núllinu.
Í ljósi þessa verður það enn furðulegra að kaupendur hrogna skulu ganga hart eftir verðlækkunum á þeim hrognum sem enn eru til á Íslandi. Það verður alla vega ekki skýrt með„ofveiði, hvorki hér né annars staðar.
Screen Shot 2012-07-05 at 4.46.10 PM.png 
Fjölmargir bátanna sem notaðir eru við grásleppuveiðar á Grænlandi eru af þessari gerð.  Það kemur sjaldnast að sök, því sumstaðar er svo stutt á miðin að það er nóg að sparka bátunum frá bryggjunni.