Ríkisstjórn fjallar um hagsmuni smábátaeigenda

Samkvæmt dagskrá funda ríkisstjórnarinnar hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnt þar tvö frumvörp sem skipta smábátaeigendur afar miklu máli.  
Þann 27. október var á dagskránni „Frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (byggðaráðstafanir o.fl.).  Það fjallar um atvinnu- og byggðakvóta (5,3% potturinn, strandveiðar, línuívilnun og byggðakvótar o.fl. 
Sjá umfjöllun hér á síðunni
30. október fjallaði ríkisstjórnin um „Frumvarp til laga um breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja)
Sjá umfjöllun 
LS er ekki kunnugt um hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar á frumvörpunum.  Það má þó telja líklegt ef marka má mikinn fjölda athugasemda sem gerðar voru.
201109 logo_LS á vef.jpg