Sæljón, Farsæll, Báran, Reykjanes

Lokahrina aðalfunda svæðisfélaga LS fer í hönd.  Sæljón á Akranesi, Farsæll í Vestmannaeyjum, Báran í Hafnarfirði og Reykjanes halda fundi nú í lok vikunnar.
Sæljón

Aðalfundur Sæljóns á Akranesi verður í Brekkbæjarskóla fimmtudaginn 29. september og hefst kl 20:00.
Rögnvaldur Einarsson er forsvarsmaður Sæljóns
Farsæll

Aðalfundur Farsæls í Vestmannaeyjum verður föstudaginn 30. september.  Fundarstaður er SJÓVÉ og hefst fundurinn kl 16:00.
Jóel Andersen er formaður Farsæls
Báran

Aðalfundur Bárunnar í Hafnarfirði og Garðabæ verður laugardaginn 1. október á Hótel Víking Hafnarfirði (á móti Fjörukránni).  Fundurinn hefst kl 12:00.   
Léttur hádegisverður í boði félagsins.   
Jón B.  Höskuldsson er formaður Bárunnar.
Reykjanes

Aðalfundur Smábátafélags Reykjaness verður haldinn í Salthúsinu í Grindavík laugardaginn 1. október.  Fundurinn hefst kl 17:00.
Kvöldverður í boði félagsins.
Þorlákur Halldórsson er formaður Reykjaness.
smabatafelag_adalfundur.jpg