Sæljón – vilja umhverfismat á áhrifum veiðarfæra

Aðalfundur Sæljóns – félags smábátaeigenda á Akranesi – var haldinn sl. fimmtudag þann 19. september.  Skemmst er frá því að segja að Skagamenn fjölmenntu til fundar og myndaðist góð stemning.  

Fjölmargar ályktanir voru samþykktar.  Meðal þeirra voru: 

  • Krafa um að strandveiðitímabilið verði lengt um ½ mánuð í hvorn enda þar sem óheimilt verði að róa á föstudag og laugardag. Fjöldi veiðidaga verði óbreyttur, 48 og heimilt að nýta 12 daga að hámarki í hverjum mánuði.  
  • Komið verði á handfæraívilnun báta minni en 30 brt .
  • Sæljón mótmælir skerðingu ráðherra á afla til línuívilnunar.

Þá samþykkti aðalfundur Sæljóns eftirfarandi um umhverfisáhrif veiðarfæra:

Aðalfundur Sæljóns, haldinn á Akranesi 19. september 2019 skorar á umhverfisráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, að beita sér fyrir því að gert verði umhverfismat á áhrifum veiðarfæra sem heimilt er nota á Íslandsmiðum á sjávarbotn og lífríki sjávar.

Stjórn Sæljóns var öll endurkjörin, en hana skipa

  • Jóhannes Simonsen formaður
  • Böðvar Ingvason meðstjórnandi
  • Guðmundur Elíasson meðstjórnandi
  • Guðmundur Páll Jónsson ritari
  • Rögnvaldur Einarsson gjaldkeri.

Ályktanir frá Sæljóni.pdf