Lengst af hefur verð á aflamarki í þorski verið nokkuð hærra en á krókaaflamarki. Í úttekt sem Fiskistofa hefur gert kemur hins vegar í ljós að verð á kvóta er nánast það sama í báðum veiðikerfunum 225 kr/kg.
Verðið hefur verið nokkuð stöðugt frá því í febrúar þegar krókaaflamarkið hækkaði.
Úttektin nær aftur til ársins 2007. Á tímabilinu fór verðið hæst í 330 krónur í byrjun árs 2012.