Samstöðufundur á Austurvelli

Fyrr í dag var haldinn fjölmennur fundur á Austurvelli.  Fundurinn fór í alla staði vel fram og var gerður góður rómur af ræðum sem þar voru fluttar.


Í lok fundar var samþykkt með dynjandi lófaklappi eftirfarandi ályktun:


„Fundur haldinn á Austurvelli fimmtudaginn 7. júní 2012 beinir því til alþingismanna að taka tillit til alvarlegra athugasemda fjölmargra aðila við frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.


Fundurinn skorar á Alþingi að vanda til verka við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar og hafa um það víðtækt samráð