Af tilefni frumsýningar SKULDAR á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg var efnt til samstöðufundar meðal strandveiðisjómanna. Fundurinn var afar vel sóttur og eindrægni meðal fundarmanna.
Gestir fundarins voru forystumenn Landssambands smábátaeigenda og Strandveiðifélags Íslands.
Á fundinum var sú staða sem upp er komin varðandi strandveiðar rædd í þaula. Fréttir sagðar og mál krufin.
Í lok fundar var eftirfarandi samþykkt.
„Samstöðufundur strandveiðisjómanna haldinn á Patreksfirði 27. maí 2023 lýsir yfir þakklæti sínu til þjóðarinnar fyrir þann stuðning sem hún hefur sýnt strandveiðum og fram kom í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Atvinnugrein þar sem þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar vilja að verði efld, á ekkert annað skilið en viðunandi starfsskilyrði.
Fundurinn skorar á hæstvirtan matvælaráðherra, Atvinnuveganefnd Alþingis og þingheim allan að tryggja strandveiðar á yfirstandandi sumri þannig að jafnmargir veiðidagar verði í öllum landshlutum.Samstaða er meðal strandveiðisjómanna að gefa eftir 4 veiðidaga á yfirstandandi vertíð gegn því að tryggðar verði veiðar í 11 daga í hverjum mánuði; maí – ágúst.