Aðalfundur Eldingar var haldinn á Hótel Ísafirði 19. september.
Fundurinn var afar vel sóttur og mörg ný andlit. Aðilar sem nýbyrjaðir eru í útgerð og aðrir sem ekki hafa tekið þátt í starfinu áður. Fundinum stjórnaði af mikilli röggsemi einn þeirra, Rúnar Karvel Guðmundsson frá Suðureyri.
Í upphafi fundar minntist, Kristján Andri Guðjónsson formaður Eldingar, Guðmundar Halldórssonar heiðursfélaga í Eldingu, sem féll frá síðastliðið sumar. Fundarmenn risu úr sætum og vottuðu virðingu sína.
Formaður gaf orðið til Arnar Pálssonar framkvæmdastjóra LS. Í ræðu sinni kom hann víða við:
- Ótímabær stöðvun strandveiða
- 5,3% potturinn hvernig veiðiheimildir hafa nýst og hvað má gera þar betur
- Fækkun krókaflamarksbáta
- Línuívilnun, nauðsynlegt að sækja fram, að allir dagróðrabátar á línu minni en 30 brt. fái ívilnun
- Fyrirætlun matvælaráðherra að leggja fram frumvörp um breytta veiðistýringu á grásleppu og svæðaskiptingu strandveiða.
- Mikilvægi þess að aflaregla verði gerð sveigjanleg.
- Þrýsting útgerða stærri togskipa að koma þeim inn fyrir 12 mílna landhelgi, að fá aflvísi burt úr lögum.
- Veiðigjald – nú væri hvorki greitt fyrir loðnu né grálúðu.
Að loknu ávarpi spruttu fram fjölmargar spurningar frá fundarmönnum. Fjörugar umræður um hin einstöku málefni sem voru all snarpar á köflum.
Undir dagskrárliðnum „Kosning stjórnar lýsti Kristján Andri því yfir að hann gæfi ekki kost á sér lengur. Þá kvaddi Þórður Sigurvinsson fulltrúi Eldingar í stjórn LS sér hljóðs þar sem hann sagði tíma til kominn fyrir nýjan mann til að taka við af sér.
Fundarstjóri óskaði eftir framboði í stöðurnar og gaf Sigfús Bergmann Önundarson frá Suðureyri kost á sér. Hann var kosinn formaður Eldingar og fulltrúi félagsins í stjórn LS með öllum greiddum atkvæðum.
Stjórn Eldingar:
Sigfús Bergmann Önundarson formaður, SuðureyriBæring Gunnarsson, BolungarvíkKarl Guðmundur Karlsson, SúðavíkPáll Björnsson, ÞingeyriRúnar Karvel Guðmundsson, SuðureyriÞórður Sigurvinsson, Suðureyri
Fundinum lauk með samþykkt eftirfarandi ályktana til 38. aðalfundar LS
• Aflamark innan 5,3% pottsins verði úthlutað með sambærilegum hætti og gert er við viðbótarheimildir í makríl og gert var með skötusel. Settar verði reglur sem verði með hámarki á hvern aðila.
• Elding krefst þess að sömu reglur gildi um karfa og ufsa við strandveiðar.
• Elding krefst þess að við strandveiðar gildi sömu reglur um VS afla á þorski og gildir
um aflamark.
• Elding krefst þess að festir verði 48 dagar við strandveiðar.
• Elding styður að línuívilun verði sett á alla báta sem eru undir 30 tonnum og styttri en 15 metrar.
• Elding krefst þess að flotvörpuveiðar við loðnuveiðar verði tafarlaust bannaðar.Það hefur sýnt sig í aukningu grásleppuafla að þetta veiðafæri skaðar aðrar fisktegundir.
• Elding fer þess á leit að LS óski eftir tilboðum í tryggingar til handa félagsmönnum.
• Eldingar fer þess á leit að LS óski eftir tilboðum í skoðun á skoðunarskyldum búnaði á smábátum.
• Elding beinir því til aðalfundar LS að staðið verði vörð um þau réttindi sem smábátasjómenn hafa í dag og komi í veg fyrir hvers konar hugmyndir um stýrimann á dagróðrabátum sem eru undir 30 tonnum og 15 metrum.
• Elding vill óbreytta stjórnun á grásleppuveiðum og hafnar hvers konar hugmyndum um kvótasetningu.
• Elding gerir kröfu um að öll reiknilíkön sem Hafrannsóknastofnun notar til ákvörðunar um heildarafla verði rannsökuð af óháðri nefnd sem í muni sitja fiskifræðingar sem ekki starfa hjá Hafró, auk sjómanna. Áhyggjuefni er að himinn og haf er á milli upplifunar sjómanna til dæmis á stöðu þorskstofnsins og það sem Hafró leggur til að megi veiða.
• Elding styður áframhaldandi Hvalveiðar við Ísland.