Sjókort aðgengileg á vefnum

 
 
Aukið samstarf Landhelgisgæslunnar og Landmælinga ríkisins hefur leitt af sér opinn aðgang að íslenskum sjókortum.  „Sjókortin sem nú eru  aðgengileg eru rastamyndir af íslensku sjókortunum eins og staðan var á útgáfunni á miðju þessu ári, ein og segir á vef Landhelgisgæslunnar.
 
Landssamband smábátaeigenda þakkar viðkomandi stofnunum framtakið.