Sjómannadagurinn

Fyrirspurnir hafa borist til skrifstofu LS um hvort heimilt sé að róa á mánudaginn.
 
Í 5. gr. laga um sjómannadag er skýrt kveðið á um þetta atriði:
„Öll fiskiskip skulu liggja í höfn á sjómannadag og hafa komið til hafnar eigi síðar en kl. 12 á laugardegi fyrir sjómannadag og láta ekki úr höfn fyrr en kl. 12 á hádegi næsta mánudag.
 
Skýrara getur það ekki verið, engin á sjó frá hádegi á morgun laugardag til hádegis á mánudag.