Sjötta árið í röð sem grásleppan bregst á Nýfundnalandi

Grásleppukarlar á Nýfundnalandi eru orðnir ansi langeygir eftir því að þar í landi geri eðlilega grasleppuvertíð. Nú er ljóst að árið 2012 ætlar ekkert að bregða út af þvi spori sem veiðarnar hrukku í 2007.  Það ár fór veiðin niður í 3000 tunnur, sem var órafjarri meðalveiði til áratuga.

Eftir það hefur svo heldur betur hallað undan fæti og nú er ljóst að 2012 verður fjórða árið í röð sem gefur veiði sem er innan við 1000 tunnur.
Hinn 21. júní s.l. var búið að framleiða 523 tunnur á Nýfundnalandi. 
Svipaðar fréttir hafa heyrst frá Noregi.  Löndin sem báru uppi um 95% veiðinnar á síðasta ári voru Ísland og Grænland. Ef nokkuð er mun hlutfall þeirra enn vaxa á yfirstandandi ári.
 Screen Shot 2012-06-26 at 12.55.44 PM.png