Skalli, Drangey, Klettur, Fontur

Aðalfundir svæðisfélaga LS standa nú sem hæst.  Í hönd fer mikil fundarhrina sem hefst með tveimur fundum á Sauðárkróki – Skalli og Drangey.   Laugardaginn 24. september verður aðalfundur Kletts, Fontur er með sinn fund á Þórshöfn degi síðar.
Skalli
Aðalfundur Skalla er á morgun föstudag á Sauðárkróki – Kaffi Krók – hann hefst kl 13:00.
Formaður Skalla er Steinn Rögnvaldsson
Drangey – smábátafélag Skagafjarðar
Aðalfundur Drangeyjar er á morgun föstudag á Bláfelli Sauðárkróki – hann hefst kl 17:00.
Formaður Drangeyjar er Steinar Skarphéðinsson
Klettur
Klettur (Ólafsfjörður – Tjörnes) er með fund á Akureyri.  Fundurinn verður nk. laugardag 24. september.   Fundarstaður er Strikið Skipagötu 14 og hefst aðalfundur Kletts kl 16:00.
Formaður Kletts er Óttar Már Ingvason
Fontur
Aðalfundur Fonts verður á Þórshöfn, veitingastaðnum Bárunni, sunnudaginn 25. september og hefst kl 12:00
Formaður Fonts er Oddur Vilhelm Jóhannsson

Félagar sýnið samstöðu og fjölmennið á fundina.  Halldór og Örn mæta með nýjustu tíðindi af málefnum smábátaútgerðarinnar.


DSCN1202 (1).jpg