Skarphéðinn Árnason látinn

Hinn 27. desember sl. lést á Akranesi Skarphéðinn Árnason, trillukarl.  Skarphéðinn fæddist 31. mars 1924.

Skarphéðinn sat í stjórn LS frá stofnun árið 1985 til ársins 2005 sem fulltrúi Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi.  Hann var gerður að heiðursfélaga í LS frá 2004.
Skarphéðinn verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 7. janúar nk. og hefst athöfnin kl. 14:00.
Skarphéðni er hér með þakkað fyrir vel unnin störf í þágu trillukarla.
Fjölskyldu og aðstandendum Skarphéðins er vottuð samúð.
SA.png