Nú styttist í vorið og margir strandveiðimenn farnir að huga að bátum sínum fyrir vertíðina.Undanfarin ár hefur mikið álag verið á skoðunarstofum síðustu dagana í apríl og erfitt að sinna öllum á stuttum tíma.

LS beinir því til strandveiðimanna að huga tímanlega að skoðunum á bátum sínum og ekki seinna vænna en strax að huga að skoðun á
- björgunarbáti
- slökkvitækjum
- lyfjakistum
- dagsetningum á neyðarblysum og björgunargöllum sem skoða þarf á 5 ára fresti.













