Nú styttist í vorið og margir strandveiðimenn farnir að huga að bátum sínum fyrir vertíðina.
Bendum við á að rétt er að huga að skoðun í tíma á eftirfarandi atriðum:
• björgunarbáti
• slökkvitækjum
• lyfjakistum
• dagsetningum á neyðarblysum og björgunargöllum sem skoða þarf á 5 ára fresti
Hér að neðan er listi sem hver bátur ætti að hafa um borð til áminningar um það sem þarf reglulega að fara yfir og hafa í huga til að auka öryggi. Gátlisti til að prenta.pdf
Dælubúnaður vél, eldsneytis og rafkerfi.
• Gróðurmyndum í tönkum sem geta orsakað stíflu í olíukerfum og síum. (Gerist stundum eftir langt stopp)
• Hreinsa eldsneytisolíukerfi, olíugeyma, lagnir og síur sérstaklega vel eftir langa legu báts.
• Athuga með olíumæla, eru þeir að sýna rétta olíustöðu um borð? Er hægt að mæla olíustöðuna um borð ef mælir er bilaður?
• Athuga ástand rafgeyma og ef vafi er um ástand, biðja skoðunamenn um að álagspófa geymana.
• Eru lensidælur og lagnir frá dælu í lagi? (Æskilegt að hafa færanlega handdælu um borð?)
• Vara olíu og vatns síur og verkfæri til að skipta um þær.
• Vara reimar og verkfæri til að skipta um þær.
• Varabirgðir af smurolíu.
• Landfestar í góðu ásigkomulagi?
• Ankeri klár og tilbúin til notkunar?
• Stýri og neyðarstýri í lagi?
• Siglingaljós í lagi?
• Úti hátalarar fyrir talstöð í lagi?
Neyðar og björgunarbúnaður.
• Yfirfara frágang á losunarbúnaði björgunarbáta.
• Björgunarbúningar og -vesti aðgengileg.
• Handslökkvitæki aðgengileg. (Ekkert að því að hafa fleiri en reglugerðir gera ráð fyrir)
• Neyðarútgangar greiðfærir.
• Neyðarstigi í lagi. (Fastur stigi á skut)
• Sjúkrakassi í lagi.
• Neyðarblys.
• Neyðarsendar.
• Vasaljós + auka rafhlöður.
• Dráttartóg.
Fjarskipti og sigling.
• Talstöð, AIS og sími í lagi.
• Loftnet fyrir talstöð AIS og síma í lagi.
• Sýnir AIS tæki réttar upplýsingar þ.e. auðkenni báts og nafn (hægt að athuga á marinetraffic.com).
Brottför
• Að allt sé í lagi sem listað hefur verið upp hér að ofan.
• Sinnið nýliðafræðslu ef nýr aðili kemur með í sjóferð og leggið áherslu á staðsetningu björgunarbúnaðar og losun björgunarbáts
• Lögskráning samkvæmt reglum, trygging áhafnar, réttindi og öryggisfræðsla skipverja í lagi.
• Athuga veðurspá.
• Næg hvíld fyrir sjóferðina.
• Þekking á stjórnbúnaði báts og stöðuleika.
• Næg eldsneytisolía fyrir sjóferðina.
• Sjóbúnaður í lagi.
• Kveikja á AIS tæki fyrir brottför
• Tilkynna brottför til strandstöðvar á rás VHF 09 eða með vss appinu.
• Talstöð stillt á Dual Watch (vinnurás og rás 16) eða rás 16.
• Tilkynna við brottför ef tilgangur er annar en Strandveiðar.
• Klæðast „fleytibúnaði við vinnu á þilfari.
• Sjókort (uppfært) af svæðinu sem veiðar eru stundaðar á.