Smábátar greiða lægri veiðigjöld

Grænlenska þingið samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta nýtt veiðigjaldakerfi sem tekur gildi 1. janúar 2018.  Við strandveiðar smábáta greiðist aðeins gjald fyrir grálúðu og rækju.  Í meðförum þingsins var ákveðið að fella niður fyrirhugaða gjaldtöku af öðrum tegundum og munar þar mestu um þorsk og grásleppu.   
Skip sem stunda veiðar utan strandveiðisvæðisins þurfa hins vegar að greiða veiðigjald af 9 tegundum til viðbótar við rækju og grálúðu.  
Gjaldið er föst krónutala fyrir uppsjávartegundir en af öðrum afla er það 5% af því verði sem fiskvinnslan í Grænlandi greiðir fyrir viðkomandi tegund.  Undantekning, ef kílóverð nær ekki 8 DKr (130 Kr) þá er aðeins innheimt lágt grunngjald 5 aurar – 0,80 Kr á hvert kíló.
Í beinum útflutningi tekur veiðigjald mið af útflutningsverðmæti og getur þá hæst farið í 17,5% af útflutningsverði. 
Áætlanir gera ráð fyrir að heildarálagning á árinu 2018 verði 380 milljónir Dkr – jafnvirði 6,2 milljarðar íslenskra króna.