Aðalfundir þriggja svæðisfélaga verða haldnir nk. sunnudag, mánudag og þriðjudag. Eins og fram hefur komið fundar Snæfell á Kaffi Emil í Grundarfirði nk. sunnudag kl 16:00.
Formaður Snæfells er Guðlaugur Gunnarsson
Smábátafélaga Reykjavíkur
Þann 12. september nk. mánudag – verður aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Suðurbugt Geirsgötu 5c og hefst kl 17:00.
Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Þorvaldur Gunnlaugsson.
Árborg
Aðalfundur Árborgar verður í Rauða Húsinu á Eyrarbakka þriðjudaginn 13. september. Fundurinn hefst kl 18:00.
Formaður Árborgar er Þorvaldur Garðarsson