Snæfell – vilja að allir fái veiðiheimild

Aðalfundur Snæfells var haldinn í Grundarfirði 27. september sl.
Strandveiðar
Tillaga sjávarútvegsráðherra um breytingar á strandveiðikerfinu lagðist afar illa í fundarmenn.   Einhugur var um að mótmæla því harðlega að hverfa aftur til fyrra veiðikerfis sem allir flokkar á Alþingi samþykktu að leggja af 2018.  Þar hefði vegið þungt að breytingin mundi auka öryggi sjómanna á strandveiðibátum.  Nú væri brýnt að stíga lokaskrefið í átt til öruggari veiða með því að tryggja að dagar til strandveiða verði aldrei færri en 48 talsins.
IMG_2693.png

Grásleppumál
Einhugur var um að fordæma vinnubrögð sjávarútvegsráðherra við framkvæmd grásleppuveiða á síðustu vertíð.  Með þeim hefði grásleppuútgerðum verið freklega mismunað og skemmdarverk unnið á stjórnkerfi veiðanna.  
Mestur hluti grásleppuumræðunnar fór hins vegar í að ræða hvort áfram ætti að byggja veiðistjórn á núgildandi kerfi eða kvóta á hvern bát.  Bæði kerfin hefðu sína kosti og galla.  Samkomulag var um að ef sett yrði á aflamark yrði að tryggja að allir sem væru með grásleppuleyfi í dag fengju einhverja veiðiheimildir.
Línuívilnun
Mikilvægi línuívilnunar væri nú meira en oft áður, þegar horft væri til aukins atvinnuleysis.  Bregðast þyrfti við með að hækka ívilnun úr 20% í 30% og tryggja öllum dagróðrabátum línuívilnun.
Sektir í stað reglugerðarlokana
Á fundinum var rædd skýrsla starfshóps um „faglega endurskoðun varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæða og verndunarsvæða á Íslandsmiðum.  Hugmyndum hópsins um lokun svæða fyrir handfæraveiðum var harðlega mótmælt.  Í stað reglugerða- og skyndilokana á handfæraveiðar ætti að beita sektum eða sviptingu veiðileyfis á þá aðila sem koma með of smáan fisk að landi.
Stjórn Snæfells
Runólfur Kristjánsson formaður
Bergvin Snævar Guðmundsson
Guðlaugur Gunnarsson
Lúðvík Smárason
Valentínus Guðnason
Sjá allar samþykktir fundarins.
Tillögur Snæfells 2020.pdf til 36. aðalfundar LS