Staðan orðin grafalvarleg

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun gerði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra grein fyrir áhrifum COVID-19 á íslenskan sjávarútveg og landbúnað.
„Varðandi sjávarútveg væri ljóst að eftirspurn eftir ferskum fiski í Evrópu væri orðin því sem næst engin.  Áhrifin væru þó víðtækari og ekki bundin við ferskar afurðir enda yrðu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki vör við samdrátt í eftirspurn allra tegunda inn á sína sterkustu markaði.