Aðalfundur Fonts var haldinn á Þórshöfn 25. september sl. Á fundinn mættu smábátaeigendur alls staðar af félagssvæðinu sem nær frá Kópaskeri til Vopnafjarðar.
Að venju voru grásleppuveiðar mikið ræddar í ljósi þess hve veiði var léleg á öllu svæðinu að Kópaskeri undanskildu. Veiðin aðeins helmingur þess sem hún var á vertíðinni 2015 og náði ekki 40% á Bakkafirði, Vopnafirði og Raufarhöfn
Grásleppuveiði |
2015 |
2016 |
Kópasker |
537 tunnur |
682 tunnur |
Raufarhöfn |
890 tunnur |
342 tunnur |
Þórshöfn |
417 tunnur |
219 tunnur |
Bakkafjörður |
810 tunnur |
282 tunnur |
Vopnafjörður |
987 tunnur |
382 tunnur |
Samtals |
3.641 tunnur |
1.907 tunnur |
Fyrirhugaðar framkvæmdir í Finnafirði fengu mikið rúm á fundinum. Fullyrt var að ekki hefðu farið fram neinar rannsóknir á lífríki sjávar, þrátt fyrir að þarna ætti að byggja höfn byggða á úrgangi úr málmgrýti sem flutt yrði frá Grænlandi. Umræðum lauk með samþykkt eftirfarandi ályktunar:
Aðalfundur Fonts mótmælir harðlega öllum áformum um byggingu stórskipahafnar íFinnafirði og Gunnólfsvík.Samkvæmt þeim hugmyndum sem fram hafa komið og birst í fjölmiðlum, þá munu aðal hrygningarstöðvar þorsks sunnan Langaness allt suður fyrir Glettinganes verða innan hafnar.Merkingar Hafró hafa sýnt að fiskur merktur á hrygningarslóðinni í Finnafirði og Gunnólfsvík veiðist aðallega á svæðinu frá Langanesi suður undir Glettinganes. Augljóst má vera að það er ekki tilviljun að þorskurinn velur sér þetta svæði til hrygningar. Þarna eru einfaldlega bestu skilyrði til hrygningar þorsks sunnan Langaness.Aðalfundur Fonts telur einboðið að bygging hafnar í Finnafirði og Gunnólfsvík stefni veiðistofni þorsks á svæðinu sunnan Langaness í verulega hættu.Með byggingu hafnarinnar er afkomu félagsmanna Fonts stefnt í algjöra óvissu.Aðalfundur Fonts gerir þá kröfu að nú þegar verði látið af öllum áformum í þessa veru.Aðalsmerki smábátasjómanna eru umhverfis- og vistvænar veiðar þar sem fyllstu varúðar er gætt gagnvart náttúrunni.Eyðilegging stærstu hrygningarstöðva þorsks sunnan Langaness er umhverfisslys í sinni verstu mynd.
Oddur Jóhannsson var endurkjörinn formaður Fonts