Eftirfarandi tilkynning var birt á heimasíðu Fiskistofu fyrr í dag.
„Frá og með 12. febrúar 2021 er felld niður línuívilnun í þorski, ýsu og keilu sem ákveðin er í reglugerð nr. 729/2020 um línuívilnun. Afnám línuívilnunar er gert með stoð í 4. gr. reglugerðarinnar. Línuívilnun þessara tegunda verður aftur heimild frá og með upphafi næsta tímabili sem hefst 1. mars 2021.
4. gr. reglugerðarinnar sem hér er vitnað til orðast svo:
„Frá og með 12. febrúar 2021 er felld niður línuívilnun í þorski, ýsu og keilu sem ákveðin er í reglugerð nr. 729/2020 um línuívilnun. Afnám línuívilnunar er gert með stoð í 4. gr. reglugerðarinnar. Línuívilnun þessara tegunda verður aftur heimild frá og með upphafi næsta tímabili sem hefst 1. mars 2021.
Á vef Fiskistofu er staða línuívilnunar sögð þannig:
Samkvæmt myndinni er viðmið 1. sept – 28. feb 739 tonn og ívilnun komin í 827 tonn, 88 tonn umfram.
Myndin hér að neðan sýnir hver staðan er á ýsunni. Þar er búið að veiða 66 tonn umfram viðmið.
Það svo önnur saga sem LS á við sjávarútvegsráðherra hvers vegna hann beitir sér svo grimmt í að skerða heimildir til línuívilnunar í þorski.
Viðmiðun til línuívilnunar Fiskveiðiár Þorskur 2018/2019 3.000 tonn 2019/2020 2.000 tonn 2020/2021 1.050 tonn
Við upphaf fiskveiðiársins var viðmiðunin 1.200 tonn, en með reglugerð 1178/2020, 25. nóvember var hún lækkuð í 1.050 tonn.