Fiskistofa hefur tilkynnt stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Svæðið lokast frá og með 19. júní og opnar ekki aftur fyrr en 1. júlí.
Áður en veiðar hófust í dag átti eftir að veiða 122 tonn af alls 864 tonnum sem heimilt var í júní.
Alls voru veiðidagar 9 í júní.