Strandveiðum 2019 lauk á höfuðdegi þann 29. ágúst. Sett var aflamet á veiðunum í ár, aflinn fór í rúm 10 þúsund tonn. Af heildaraflanum voru 9.162 tonn af þorski, 829 tonn ufsi og 73 tonn af karfa. Alls fóru strandveiðibátar í um 16 þúsund róðra til að ná þessum afla.
Þátttakendum í strandveiðum er nú aftur byrjað að fjölga eftir viðvarandi fækkun síðastliðinna ára. Alls voru 623 bátar skráðir með löndun 75 fleiri en á síðasta ári.
Afli á hvern bát dróst saman milli ára, varð nú 16,5 tonn á móti 17,8 tonnum á síðasta ári. Fjöldi nýttra daga lækkaði einnig, 25,6 í ár en 27,2 í fyrra.
Góð afkoma
Flestir strandveiðisjómenn hafa þá sögu að segja að afkoma veiðanna í ár hafi verið með besta móti. Meðalverð á fiskmörkuðum fyrir óslægðan þorsk á strandveiðitímabilinu var 39% hærra en í fyrra. Munurinn 31% (282 Kr/kg) í maí, 34% (321) í júní, 52% (337) í júlí og 41% (380) í ágúst.
Aflaverðmæti strandveiða losa 3 milljarða.
Sala á fiskmörkuðum á strandveiðtímabilinu.
Óslægður þorskur veiddur á handfæri.