Eigendur strandveiðibáta um land allt eru nú í óða önn að gera sig klára til veiðanna sem hefjast nk. mánudag 2. maí. Að mörgu þarf að hyggja þannig að öllum skilyrðum fyrir veiðileyfi sé fullnægt. Umsókn fer í gegnum Ugga á vef Fiskistofu.
Sérstök athygli er vakin á að sé ætlunin að hefja strandveiðar 2. maí þarf að sækja um veiðileyfi fyrir kl 15:00 á morgun – föstudaginn 29. apríl og greiða greiðsluseðil fyrir leyfið í heimabanka fyrir kl 21:00 þann dag.
Þegar þetta er skrifað rétt fyrir hádegi hafði Fiskistofa samþykkt 275 umsóknir um strandveiðileyfi. Gera má ráð fyrir að á fjórða hundrað bátar hefji veiðar á fyrsta degi strandveiða 2016.
Strandveiðar hófust í júní 2009 og er tímabilið sem nú fer í hönd því það áttunda í röðinni.
Fundur með sjávarútvegsráðherra
Talsverðrar óánægju gætir meðal strandveiðimanna vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að minnka aflaviðmiðun á svæði D um 200 tonn á sama tíma og bætt er 400 tonnum við heildarpottinn. Gert hafði verið ráð fyrir að viðbótinni yrði skipt í þeim hlutföllum sem verið hefur undanfarin ár. Inngrip ráðherra kom því verulega á óvart.
LS mun funda með sjávarútvegsráðherra næstkomandi mánudag 2. maí. Á fundinum verða strandveiðar m.a. til umræðu þar sem LS mun koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvetja ráðherra til að auka aflaviðmiðun til strandveiða.