Undirrituð hefur verið reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2015/2016. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur boðað birtingu hennar í Stjórnartíðindum í dag 26. apríl 2016.
Í reglugerðinni er aflaviðmiðun alls 9.000 tonn sem er hækkun um 400 tonn frá í fyrra.
Ráðuneytið ákvað að breyta aflahlutföllum milli svæða. Þannig hækkar viðmiðun á svæði A um 550 tonn og á B um 50 tonn. Á C svæði er aflaviðmiðun óbreytt, en á D lækkar viðmiðunin um 200 tonn.
Taflan hér að neðan sýnir viðmiðun í ár og hverjar þær voru árið 2015.
Að öðru leiti er reglugerðin 2016 óbreytt frá í fyrra.