Strandveiðar 7.000 tonn og 600 bátar

Strandveiðibátar rufu 7.000 tonna aflamúrinn sl. fimmtudag.  Alls hafa 600 bátar fengið leyfi til veiða og hafa 582 af þeim verið virkjuð. 
434.jpg
Orri SU Djúpavogi á leið á miðin
Flestir eru bátarnir á svæði A – 225 og er afli þeirra að meðaltali 12,6 tonn sem er jafnmikið og á svæði C.   Afli báta á svæðum B, C og D náði ekki aflaviðmiðun í maí og júní.  Í júlí er líklegt að það endurtaki sig.  Á svæði A voru veiðar hins vegar stöðvaðar eftir 13 daga í maí, 10 í júní og í júlí lauk veiðum eftir 8 daga.  
Mestur afli að meðaltali í róðri er á svæði A – 675 kg
Myndin hér að neðan sýnir stöðu strandveiða 2017 að loknum veiðum sl. fimmtudag 20. júlí.
Screen Shot 2017-07-24 at 23.52.26.png