Í dag verður 1. umræða um lagafrumvarp atvinnuveganefndar um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Breytingin felst í að fella bráðbirgðaákvæði um fyrirkomulag strandveiða inn sjálfan lagatextann. Það fyrirkomulag sem var á veiðunum á síðasta sumri verður því ekki lengur til bráðabirgða í eitt ár, heldur fær sinn sess í lögunum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður atvinnuveganefndar mun mæla fyrir frumvarpinu og að lokinni ræðu hennar verða umræður um málefnið. Þingfundur hefst kl 10:30 og eru strandveiðar 7. liður á dagskránni.
Það er nýmæli í frumvarpinu að ufsi sem strandveiðibátar veiða telst hvorki með í leyfilegum 650 þorskígilda hámarksskammti á dag né til þess heildarafla sem miðað verður við á strandveiðum.