Nk. mánudagur 22. ágúst er síðasti veiðidagur strandveiðibáta á svæði C – frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps.
Að loknum gærdeginum 18. ágúst var aðeins eftir að veiða 58 tonn á svæðinu. Þegar tekið er tillit til vigtarskýrslna og eins dags veiði gerir Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið ráð fyrir að veiðiheimildir verði fullnýttar.
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir stöðu veiðanna.