Strandveiðar fóru vel af stað

Áætla má að í gær miðvikudaginn 1. ágúst hafi um 530 bátar landað afla sem jafngildir að tveir af hverjum þremur sem hafa leyfi hafi verið á sjó.  Endanlegar tölur liggja þó ekki fyrir. 
Strandveiðiafli dagsins varð 309 tonn, en sú tala á líklega eftir að hækka eitthvað þegar endanlegri vigtun er lokið.
Á A svæðinu þar sem Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst að strandveiðum ljúki í dag endaði aflinn í 161 tonni sem er um helmingur þess sem eftir er.  Það er því ljóst að áætlunin sem auglýsing ráðuneytisins byggir á mun standast.
Myndin sýnir stöðuna eins og hún er eftir gærdaginn.