Strandveiðar hafnar í fimmta sinn

Í dag var fyrsti dagur strandveiða 2013.  Þetta er í 5. skiptið sem strandveiðar eru heimilaðar og sýnir vel að veiðikerfið hefur fest sig í sessi.
Alls höfðu 407 bátar heimild til að róa á þessum fyrsta degi, en umsóknir voru komnar í 462 í upphafi dagsins.  Flest leyfin hafa verið gefin út á svæði A 212 (Breiðafjörður – Vestfirðir), 104 bátar höfðu leyfi til að róa á svæði D (Höfn að Snæfellsnesi, 77 á B svæðinu (Húnaflói – Eyjafjörður og 69 á svæði C (austanverður Eyjafjörður – Djúpivogur).
Af þessum fjölda umsókna að dæma er ljóst að þátttaka í veiðunum í sumar verður góð sem sýnir best hversu áhugi á veiðunum er mikill.