Strandveiðar hafnar í níunda sinn

Fyrsti dagur strandveiða 2017 var í dag, 2. maí.  Alls höfðu 374 bátar virkjað leyfi til veiða, en hætt er við að veður hafi víða hamlað sjósókn.  Eins og undanfarin ár eru flestir bátarnir á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) alls 176.
Taflan hér að neðan sýnir samanburð frá í fyrra á fjölda báta og skiptingu milli svæða við upphaf strandveiða.

Svæði

2017

2016

A

176

182

B

74

83

C

47

51

D

77

97

Samtals

374

413

Samkvæmt reglugerð er aflaviðmiðun nú 9.200 tonn af óslægðum botnfiski.  Skipting viðmiðunarinnar er eftirfarandi:

Svæði

maí

júní

júlí

ágúst

samtals

A

852

1.023

1.023

512

3.410

B

521

626

626

313

2.086

C

551

661

661

331

2.204

D

600

525

225

150

1.500

Samtals

2.524

2.835

2.535

1.306

9.200