Strandveiðar eru nú komnar á fullt skrið. Fyrsta vikan búin og skilaði hún alls um 300 tonnum þá þrjá daga sem heimilt var að veiða. Fjöldi báta á bakvið aflann er 291, þar af 121 á svæði A. Svæði D hefur gefið mestan afla miðað við róðra, 693 kg að meðatali sem hver sjóferð hefur skilað. Hver sjóferð þann 3. Maí skilaði hæsta meðaltalinu á tímabilinu 724 kg hjá þeim 108 bátum sem þá komust á sjó. Þann dag var hæsta meðaltalið á svæði C hjá þeim 30 bátum sem réru 894 kg að meðaltali.
Taflan sýnir yfirlit sem lokar tímabilinu 2. – 4. maí.
|
á |
afli |
afli pr. róður |
||
A |
121 bátar |
115 tonn |
632 kg |
|
|
B |
46 bátar |
31 tonn |
537 kg |
|
|
C |
42 bátar |
42 tonn |
557 kg |
|
|
D |
82 bátar |
111 tonn |
693 kg |
|
Jafnt og undanfarin ár má afli í hverri sjóferð ekki fara umfram 650 þorskígildi. Veiði viðkomandi eingöngu þorsk er hámarkið 774 kg. Sé eingöngu um ufsa að ræða í tiltekinni veiðiferð er hámarkið 1.005 kg.
Við útreikninga til þorskígilda skal margfalda óslægðan afla með eftirfarandi stuðlum:
Þorskur 0,8400Ufsi 0,6468Ýsa 1,0332Karfi 0,7900Steinbítur 0,7110Langa 0,5440Keila 0,4230