Strandveiðar í byrjun ágúst

Mikið hefur verið fjallað um komandi tímabil strandveiða sem hefst 1. ágúst nk.  Bent hefur verið á og komið fram óskir um að fresta upphafstíma veiðanna fram yfir verzlunarmannahelgi. 
 
Málefnið kom til umræðu á fundi stjórnar LS sem haldinn var 18. og 19. júlí sl.   Þar kom fram að LS hefði rætt fyrirkomulag strandveiða við Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.  Ákvæði laga um stjórn fiskveiða gefa hins vegar ráðuneytinu ekki heimild til útgáfu reglugerðar sem banna strandveiðar 1. og 2. ágúst.