Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu lönduðu 86 bátar á fyrsta degi strandveiða rúmum 32 tonnum.
Aflinn skiptist þannig á svæðin:
A: 28 bátar á sjó. Afli: 7,4 tonn. Meðalafli á bát 265 kg
B: 13 bátar á sjó. Afli: 3,8 tonn. Meðalafli á bát 294 kg
C: 15 bátar á sjó. Afli: 7,4 tonn. Meðalafli á bát 496 kg
D: 30 bátar á sjó. Afli: 13,4 tonn. Meðalafli á bát 432 kg
Alls eru nú 478 bátar komnir með leyfi, en sökum leiðindaveðurs á miðunum í gær urðu margir að hætta við að fara á sjó og þurfa því að bíða til mánudags sem er næsti dagur sem róa má.