Strandveiðar, línuívilnun og grásleppan í brennidepli

Öll svæðisfélög LS hafa nú gengið frá ályktunum til 35. aðalfundar LS sem haldinn verður á Grand Hótel 17. og 18. október.  Birtar hafa verið tillögur frá Snæfelli og Sæljóni.  Í þann hóp bætast nú Árborg, Krókur, Elding og Strandir.  
Árborg – félag smábátaeigenda á Suðurlandi
Árborg fundaði á Þorlákshöfn 18. september.  Meirihluti félagsmanna var mættur og tókst fundurinn með miklum ágætum.
  
Formaður Árborgar er Stefán Hauksson Þorlákshöfn
Strandveiðifélagið Krókur
Aðalfundur félagsins var haldinn á Patreksfirði 23. september.  Það vakti athygli hversu fáir voru mættir til fundarins.  Skýringar sem gefnar voru að menn væru á faraldsfæti og að nýta frábært veður til sjósóknar þennan dag.
Formaður Króks er Einar Helgason Patreksfirði
Elding – félag smábátaeigenda á norðanverðum Vestfjörðum
Aðalfundur Eldingar var haldinn á Ísafirði 24. september.  Mæting hefur oft verið betri, en eins og á Patró var það góða veðrið sem hvatti til sjósóknar og því færri en ella á fundinum.
Formaður Eldingar er Ketill Elíasson Bolungarvík
Smábátafélagið Strandir
Aðalfundur Stranda var haldinn á Hólmavík 24. september.  Mjög góð mæting var á fundinn og snarpar umræður, einkum um grásleppu og strandveiðar.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi
LS_adalfundur_2019_auglysing copy.png