Strandveiðar – reglugerð 2012

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar 2012.  

Nokkrar breytingar eru frá fyrirkomulagi veiðanna í fyrra.  Það helsta er að forsenda þess að viðkomandi bátur fái heimild til strandveiða er að eigandi sé lögskráður á bátinn.  Í reglugerðinni er eftirfarandi útfærsla á eignarhaldsákvæðinu:

Einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. 


Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Þegar fiskiskip er í eigu lögaðila er  fullnægjandi ef einn eigenda lögaðilans er lögskráður á skipið. Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lögaðilanum og þann/þá sem koma til með að vera lögskráðir á fiskiskip. 

Reglugerð um strandveiðar.pdf