Strandveiðibátar hafa veitt 8000 tonn

Strandveiðum á svæði A lýkur í dag, 12. ágúst.  Alls hafa 239 bátar stundað veiðar á svæðinu sem er 11 bátum færra en í fyrra.  Þegar aflatölur eftir gærdaginn voru skoðaðar eru 125 tonn óveidd.  Sjómenn á svæðinu telja að bæta þurfi við degi svo allur aflinn náist, þar sem fáir bátar hafa komist á sjó vegna brælu.
Heildarfjöldi veiðidaga á svæði A voru þetta árið aðeins 28.  Sjö dagar í maí og júní, 9 í júlí og 5 dagar nú í ágúst.  
Afli á svæðinu hefur verið góður í sumar og er gremjulegt að ekki skuli vera gert ráð fyrir meiru til skiptanna.  LS gerði kröfu um að viðmiðun yrði aukin m.t.t. til þeirrar aukningar sem verið hefur í veiðiheimildum í þorski og ufsa.  Þannig yrði ný viðmiðun 10.194 tonn í stað 8.600 tonna sem nú er – 18,6% aukning.   Því miður urðu hvorki ráðherra né atvinnuveganefnd Alþingis við beiðni LS.
Sjá nánar útdrátt úr bréfi LS um málefnið:   Aflaviðmiðun verði aukin.pdf
Heildarafli strandveiðibáta á yfirstandandi tímabili stendur nú í 8.087 tonnum.