Nú fer fram á Alþingi 3. umræða um strandveiðifrumvarpið. Formaður atvinnuveganefndar Lilja Rafney Magnúsdóttir hefur mælt fyrir áliti nefndarinnar. Þar eru lagðar til nokkrar breytingar.
- Hámarksafli á ufsa verður 700 tonn
- Í stað þess að 50% af aflaverðmæti ufsa gangi til útgerðar verður prósentan 80%
- Veiðisvæði útgerðar viðkomandi fiskiskips verður þar sem heimilisfesti hennar var skráð 23. apríl 2018. Undantekning á þessu er að útgerð getur valið sér það svæði sem hún hefur stundað veiðar frá í tvö af sl. þremur árum óháð heimilisfesti í dag.
Hægt er að hlusta á umræðuna með því að blikka hér