Strandveiðileyfi felld úr gildi

 
 
Matvælaráðuneytið hefur sent reglugerð til birtingar í Stjórnartíðindum um breytingu á reglugerð um strandveiðar.  Þar er kveðið á um að Fiskistofa skuli fella úr gildi leyfi til strandveiða, frá sama tíma og strandveiðar eru stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum.   
 
Gert er ráð fyrir að reglugerðin birtist í dag.