Strandveiðifélagið Krókur lýsir yfir ánægju og stuðningi við frumvörp til breytinga og úrbóta á strandveiðikerfinu og hvetur alþingismenn allra flokka til að styðja breytingar sem þar koma fram, sem stuðla að meira öryggi við veiðarnar.
Strandveiðifélagið Krókur vill minna háttvirta alþingismenn á mikilvægi strandveiða fyrir alla landsbyggðina og að kröfur strandveiðimanna séu sanngjarnar og breytingar tímabærar.

Löndunarbið á Patró 4. júlí 2016
Strandveiðifélagið Krókur ítrekar ennfremur kröfur Landssambands smábátaeigenda;„Strandveiðar til framtíðar, þ.e. 4 mánuðir, 4 daga í viku, 4 rúllur á bát, 650 þíg. kg í róðri.
4. apríl 2017
Fh. Strandveiðifélagsins Króks
Friðþjófur Jóhannsson formaður













