Til hamingju Axel

Athugasemdir og eftirfylgni frá Axel Helgasyni fv. formanni LS hafa orðið til þess að Hafrannsóknastofnun hefur leiðrétt aflaráðgjöf í grásleppu.  Í stað þess að stofnunin ráðlagði að heildarafli færi ekki umfram 4.646 tonn hefur ný ráðgjöf verið gefin út uppá 5.200 tonn.  
DSCF2311_2 copy 2.jpg
Leiðréttingin er gríðarlega mikilvæg og kemur til með að hafa áhrif á ráðgjöf stofnunarinnar í náinni framtíð.  Aflatölur sem byggt hefur verið á fá þannig að standa óbreyttar.  Lækkun á grundvelli nýrrar viðmiðunar sem stofnunin ákvað fyrir yfirstandandi vertíð hefur þar með verið felld úr gildi. 
 
Hækkun ráðgjafar nú um 12% kemur einnig á áðurútgefna upphafsráðgjöf næstu vertíðar.  
LS leggur áherslu á að hafi Hafrannsóknastofnun fyrirætlanir um breytingar á forsendum ráðgjafar er nauðsynlegt að vanda til verka og hafa um það víðtækt samráð við hagsmunaaðila.  
Áætlað útflutningsverðmæti þess magns sem leiðréttingin skilar er um 250 milljónir.