Tugaprósenta hækkun á þorski

Eftir afar dapurt verð á óslægðum þorski á fiskmörkuðum í sumar hafa kaupendur nú tekið við sér.  Á fyrstu 9 mánuðum ársins var verðið lægst í júlí 196 kr/kg.  Í september var það hins vegar 291 kr/kg sem er hvorki meira né minna en 48% hækkun – 95 krónur á hvert kílógramm.  
Hækkunin er afar kærkomin og er vonandi að hún gefi vísbendingu um frekari þróun í þessa átt á næstu mánuðum.  
Screen Shot 2017-10-16 at 19.22.33.png