Ufsi fyrir ýsu

Gefin hefur verið út reglugerð sem heimilar flutning veiðiheimilda úr krókakerfi yfir í aflamarkskerfið.  
Frá og með 10. júní nk. verður heimilt „að flytja aflamark í ufsa frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu, eins og segir í reglugerðinni.
Reglugerðin er sett á grundvelli ákvæðis sem Alþingi samþykkti að bætt yrði inn í lög um stjórn fiskveiða.   Með því getur ráðherra heimilað með reglugerð flutning á aflamarki tiltekinna tegunda frá krókaaflamarksbátum til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, enda séu skiptin jöfn í þorskígildum talið.